Logandi bílhræ
				
				Eldtungurnar teygðu sig í átt til himins ofan við Helguvík sl. fimmtudag. Þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang kom í ljós að kveikt hafði verið í bílhræi og í ruslahrúgu. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins og yfirgáfu menn staðinn sótugir upp fyrir haus og með bros á vor eftir vel unnið dagsverk. 
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			




 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				