Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Loftrýmisgæsla við Ísland að hefjast
Þriðjudagur 9. maí 2017 kl. 06:00

Loftrýmisgæsla við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar kanadíska flughersins. Á vef Reykjanesbæjar segir að alls muni um 160 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex Hornet CF-188 orrustuþotur.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki miðjan júní. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Isavia.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024