Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast
Föstudagur 13. apríl 2018 kl. 07:00

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar danska flughersins. Alls munu um 60 liðsmenn danska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 12. til 17. apríl.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.  Ráðgert er að verkefninu ljúki um mánaðamótin apríl/maí. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024