Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Loftrýmisgæsla að hefjast
Þriðjudagur 27. september 2016 kl. 06:00

Loftrýmisgæsla að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju á fimmtudag í þessari viku með komu flugsveitar tékkneska flughersins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C Gripen orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum frá 29. september til 5. október.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki í byrjun nóvember. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Isavia.