Loðnuskipin á Faxaflóa
Loðnuflotinn er nú á Faxaflóa en fyrsta loðnugangan er við Sænfellsnes og er mikill hraði á göngunni. Fyrir helgi var búist við að hrognataka byrjaði á Suðurnesjum á morgun, þriðjudag. Loðnan þarf að vera með 22-23% hrognafyllingu svo hún sé frystingarhæf en nú vantar 1-2% uppá að svo sé. Þetta er hins vegar fljótt að breytast en þó misjafnt eftir göngum.