Ljósmyndavél og töskur gleymdust á KFC
Viðskiptavinur KFC í Reykjanesbæ gleymdi töskum, ljósmyndavél og fleiru á veitingastaðnum á öskudaginn. Hlutina má sjá á meðfylgjandi mynd en þeir fást afhentir réttum eiganda ef hann getur sagt frá því hvaða merki/mynd er á stóru bleiku töskunni (myndin hefur verið falin á meðfylgjandi ljósmynd) og hvaða myndir eru á myndavélinni.