Mánudagur 7. janúar 2002 kl. 16:08
Ljóslítill með kannabis á rúntinum

Á sunnudagsmorgun stöðvuðu lögreglumenn bifreið sem reyndist vera með vanbúinn ljósabúnað. Ökumaðurinn var einnig grunaður um vörslu fíkniefna og fundust þau í bifreiðinni, um var að ræða lítið magn af kannabisefnum.Á laugardaginn varð tjón á nokkrum bifreiðum þegar gerfihnattadiskur rifnaði af festingu sinni og fauk á nokkrar kyrrstæðar bifreiðar við Vallarbraut í Keflavík. Þegar þetta gerðist var mikið óveður, stormur og rigning eins og áður hefur verið greint frá hér á Netinu. Annað tjón af völdum veðursins var ekki mikið en nokkuð var um að jólaskraut væri að fjúka af ljósastaurum.