Ljósleiðarinn til Voga
Stefnt er að ljúka ljósleiðaravæðingu í þéttbýli Voga fyrir árslok 2021
Gagnaveita Reykjavíkur og Sveitarfélagið Vogar hafa gert með sér samkomulag um ljósleiðaravæðingu í þéttbýli. Viljayfirlýsing var undirrituð í dag af framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur, Erling Frey Guðmundssyni og forseta bæjarstjórnar Voga, Ingþóri Guðmundssyni. Stefnt er að ljúka ljósleiðaravæðingu í þéttbýli Voga fyrir árslok 2021.
Íbúar í Vogum geta líka sjálfir haft áhrif á í hvaða röð götur verða tengdar Ljósleiðaranum. Það gera þeir með því að lýsa yfir vilja til að tengjast Ljósleiðaranum á sérstakri síðu á vef hans, ljosleidarinn.is/vogar
Samstarf um uppbygginguna
Samstarf um uppbygginguna
Samhliða samkomulaginu við Voga hefur Gagnaveita Reykjavíkur auglýst eftir samstarfsaðilum. Samstarfið getur verið meðal annars:
að selja GR fjarskiptalagnir sem fyrir eru í sveitarfélaginu og nýst geta við ljósleiðaravæðinguna, eða með samnýtingu framkvæmda með öðrum veitufyrirtækjum, fjarskiptafyrirtækjum eða sveitarfélaginu sjálfu.
Gagnaveita Reykjavíkur auglýsir eftir samstarfsaðilum í þessa veru og geta áhugasamir aðilar kynnt sér málið frekar á ljosleidarinn.is/samstarf
Eitt gíg í boði
Heimili í Vogum munu standa til boða Eitt gíg gæðasamband Ljósleiðarans, sem gefur kost á 1.000 megabitum bæði til og frá heimili.
Flest stærstu fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um Ljósleiðarann og viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða Vodafone, Nova, 365, Hringdu og Hringiðunnar.
Stafræn framtíð Voga – Ljósleiðaravætt Ísland
Ingþór Guðmundsson forseti bæjarstjórnar telur að öflugt gagnasamband sé ein grunnstoð lífsgæða og að ljósleiðaravæðing sé mikilvæg íbúum Voga.
„Ljósleiðarasamband kemur til með að styðja við snjallvæðingu heimila og stafrænt líf íbúa Voga. Vogar eru nú þegar vel tengdir nágrönnum sínum á Höfuðborgarsvæðinu og verða enn betur tengdir að ljósleiðaravæðingu lokinni.“
„Ljósleiðarasamband kemur til með að styðja við snjallvæðingu heimila og stafrænt líf íbúa Voga. Vogar eru nú þegar vel tengdir nágrönnum sínum á Höfuðborgarsvæðinu og verða enn betur tengdir að ljósleiðaravæðingu lokinni.“
Þessi tenging íbúa í sveitarfélaginu við opið net Ljósleiðarans styður við markmið stjórnvalda um ljósleiðaravæðingu alls Íslands. Verkefnið í Vogum er alfarið á viðskiptalegum forsendum og ekki er sótt um ríkisstyrki vegna hennar.
Lokið við höfuðborgarsvæðið 2018
Nú sér fyrir endann á verkefnum Gagnaveitu Reykjavíkur við uppbyggingu Ljósleiðarans í þéttbýlinu á höfuðborgarsvæðinu. Tengingu heimila í Reykjavík lauk 2015 og á þessu ári verður lokið við að tengja hús í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Jafnframt er unnið að ljósleiðaravæðingu Borgarness og fleiri byggðakjarna í Borgarbyggð.
„Nýlega lögðum við stofnstreng suður eftir sem opnar á stækkun þjónustusvæði Ljósleiðarans á Reykjanesi. Búið er að lýsa yfir vilja til ljósleiðaravæðingar í Reykjanesbæ og við bjóðum íbúum Voga velkomna í hópinn “ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.
Nú þegar eru um 89 þúsund heimili tengd opnu neti Ljósleiðarans. Það eru um 65% allra heimila í landinu. Áætlað er að 6 þúsund heimili bætist við á þessu ári. Árið 2021, þegar stefnt að því að tengingum með samkomulaginu við Voga og nýlegu samkomulagi við Árborg og Reykjanesbæ verði lokið, er reiknað með að um 114 þúsund heimili eigi kost á þjónustu Ljósleiðarans.