Ljósanótt 31. ágúst til 3. september
Undirbúningur fyrir Ljósanótt 2023 er hafinn og fer hátíðin fram dagana 31. ágúst til 3. september 2023.
Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar hvetur alla hagsmunaaðila til að taka höndum saman um að skapa frábæra Ljósanótt 2023. Allir sem luma á góðum hugmyndum eða hafa áhuga á að leggja hátíðinni lið með fjölbreyttum hætti eru hvattir til að setja sig í samband við menningarfulltrúa Reykjanesbæjar.