Lítill fugl leitar aðstoðar lögreglu við að komast heim
Af og til fær lögreglan smáfugla í heimsókn, sem oftar en ekki hafa strokið af heiman en eru haldnir heimþrá en rata ekki heim. Laugardaginn 12. ágúst fannst lítill, ljós fugl með rauðan gogg utan við Heiðarbraut 7 í Keflavík. Þetta gæti verið Kanarífugl eða Sebrafínka. Þeir sem sakna fuglsins geta nálgast hann á lögreglustöðinni í Keflavík.