Lítið tjón í óveðri á Suðurnesjum
Óveðrið sem gekk yfir landið í gær hafði lítil áhrif á Suðurnesjum og tjón var óverulegt. Tilkynnt var um þakjárn sem var að fjúka á tveimur stöðum í Keflavík og einhverjar skemmdir urðu á gróðri. Meðal annars brotnuðu trjágreinar.Í gærkvöldi og nótt var hins vegar tíðindalaust á "vígstöðvum" lögreglunnar í Keflavík að sögn Pálma Aðalbergssonar varðstjóra.