HSS
HSS

Fréttir

Lítið nýtt á fundi á varnarstöðinni
Fimmtudagur 16. mars 2006 kl. 13:53

Lítið nýtt á fundi á varnarstöðinni

Engar nýjar upplýsingar komu fram á fundi yfirmanna Varnarliðins og starfsmanna sem fór fram í morgun. Þar var starfsmönnum greint frá ákvörðun bandarískra stjórnvalda, en Kristján Gunnarsson, formaður VSFK, sagði í samtali við Víkurfréttir að fundurinn hafi frekar einkennst af kurteisishjali en öðru.

„Yfirmennirnir tóku það fram að það væri leitt hvernig þetta hefði farið, og hversu vænt þeim þætti um alla starfsmenn sína, þannig að þetta var líkara áfallahjálp. Annars er ferlið ekki komið langt á veg þar sem enn er ekki búið að kalla til samráðs með stéttarfélögunum eins og á að gera þegar kemur til hópuppsagna.“

Kristján sagði viðbrögð fundarmanna vera blendin. Auðvitað séu menn daprir yfir þessu, en þó einkennast viðbrögðin af ákveðnu æðruleysi og jafnvel er mörgum létt að nú skuli óvissunni loks vera eytt og hægt sé að horfa til framtíðar.

„Það eru hins vegar engir sem fagna þessum fréttum nema gamlir herstöðvarandstæðingar í Reykjavík“, sagði Kristján að lokum.

Hér má sjá viðtöl vegna Varnarliðsmálsins:

Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja

Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerði

Sigurður Jónsson, bæjarstjóri Garði

Bílakjarninn
Bílakjarninn