Bygg
Bygg

Fréttir

Listaverka- og myndasafn VSFK stækkaði verulega
Laugardagur 28. desember 2002 kl. 21:31

Listaverka- og myndasafn VSFK stækkaði verulega

Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis bárust margar gjafir í dag í tilefni af 70 ára afmæli félagsins. Fjölmargar blómakörfur bárust í tilefni dagsins og þeim var síðan ekið á öldrunarheimili á starfssvæði félagsins þar sem íbúar fá að njóta blómanna. Kristján Gunnarsson og hans fólk hjá VSFK þarf hins vegar að finna veggpláss fyrir fjölda mynda sem félaginu voru færðar að gjöf í dag.Listaverk af ýmsum toga og yfirleitt af stærri gerðinni bárust félaginu í tilefni tímamótanna. Á meðfylgjandi mynd er Björg Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að afhenda Kristjáni Gunnarssyni fallega loftmynd sem ljósmyndarinn góðkunni, Mats Wibe Lund, tók yfir Reykjanesbæ og sést út í Garð, yfir hluta Keflavíkurflugvallar og Snæfellsjökull skartar sínu fegursta í baksýn. Þá bárust nokkur málverk sem einnig þurfa gott veggpláss.
Bílakjarninn
Bílakjarninn