Mánudagur 11. febrúar 2002 kl. 21:53
Listaverk í felum!

Nýverið var lokið við uppsetningu á þessu listaverki við orkuver 5 hjá Hitaveitu Suðurnesja hf. í Svartsengi. Það eru hins vegar ekki margir sem njóta verksins því það er á bakvið orkuverið og sést eingöngu frá gamla Bláa lóninu. Þar eru hins vegar ekki margir á ferli.Listaverkið er samsett úr gufurörum sem mynda tilbrigði við merki Hitaveitu Suðurnesja. Listasmíði samt sem áður og þeim sem unnu verið til sóma.