Fréttir

Lions með ókeypis blóðsykurmælingar á Suðurnesjum
Miðvikudagur 14. nóvember 2018 kl. 09:36

Lions með ókeypis blóðsykurmælingar á Suðurnesjum

Lions á Suðurnesjum mun um komandi helgi standa fyrir sinni árlegu blóðsykurmælingu í samvinnu við Lyfju, Krossmóa 4 Reykjanesbæ. 
 
Mælingar verða í Grindavík föstudaginn 16. nóvember frá kl. 13 -16 í Nettó.
 
Í Reykjanesbæ verða mælingarnar laugardaginn 17. nóvember í Krossmóa 4 frá kl. 13 – 16.
 
Í Vogunum verða mælingar einnig á laugardaginn frá kl. 13 – 15 í Tjarnasal Stóru Vogaskóla.
 
Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitundarvakningu um sykursýki.
 
Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki.
 
Mælingin er öllum að kostnaðarlausu og viljum við hvetja alla bæjarbúa til að nýta sér þessa þjónustu Lions og Lyfju.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024