Bygg
Bygg

Fréttir

Línuflugeldur hafnaði á húsi
Föstudagur 19. júní 2009 kl. 08:11

Línuflugeldur hafnaði á húsi

Línuflugeldur, af þeirri tegund sem björgunarsveitir nota til að koma línu út í strönduð skip, skall á húsi við Vallargötu í Sandgerði í gærkvöldi. Vísir.is hefur eftir varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurnesjum að björgunarsveit hafi verið við æfingar í bænum og fyrir einhverra hluta sakir hafi farið svo. Þá lenti annar eins flugeldur annars staðar í bænum.

Annars hafa síðustu dagar verið tíðindalitlir hjá lögreglu, en í gær stöðvaði lögregla bíl á Reykjanesbraut við Grænás þar sem móðir hélt á barni sínu í framsæti og hefur vænanlega haft sitthvað við það að athuga.

VF-mynd/elg - Frá Sandgerði

Bílakjarninn
Bílakjarninn