Línubátar fiska vel og fyrsta loðnan komin að landi í Grindavík

Afli þeirra línubáta sem komið hafa hefur veri mjög góður, frá 50 tonnum og upp í rúm 70 tonn, Hrungnir GK var með mest af þeim sem lönduðu fyrir helgi um 70 tonn. Á mánudag lönduðu 4 línubátar um 255 tonnum og var Geirfugl GK með um 73 tonn og voru um 60 tonn af því þorskur, þá landaði Oddgeir ÞH rúmum 20 tonnum, eftir 2 daga á veiðum, og Hafberg landaði um 18 tonnum sem fengust í net og var uppistaða aflans ufsi. Fyrsta loðnan á þessari vertíð barst til Grindavíkur á mánudaginn en þá komu Oddeyrin EA og Áskell EA báðir með fullfermi samtals 1750 tonn. Sighvatur GK landaði 65 tonnum af blönduðum afla í gær og Þorsteinn EA landaði 1900 tonnum af loðnu, Þuríður Halldórsdóttir GK landaði 50 tonnum nú í morgun og Páll Jóhannsson GK er nýkominn að landi með 90 tonn.