Límdi tvö kíló af hassi á líkamann
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði í fyrrakvöld rúmlega þrítugan Íslending sem var með um tvö kíló af hassi innanklæða. Hassið hafði hann límt á líkama sinn.Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli segir að maðurinn hafa verið stöðvaður við venjubundið eftirlit en hann var að koma til landsins frá Kaupmannahöfn. Hann hafði ekki áður komið við sögu lögreglu eða tollgæslu. Lögregan í Reykjavík fer með rannsókn málsins. Manninum hefur verið sleppt þar sem málið telst upplýst.