Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lilja Alfreðsdóttir opnaði afmælissýningar í Duus Safnahúsum
Mánudagur 4. júní 2018 kl. 10:14

Lilja Alfreðsdóttir opnaði afmælissýningar í Duus Safnahúsum

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra opnaði afmælissýningar Listasafns Reykjanesbæjar og Byggðasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum sl. föstudag. Sýningarnar eru jafnframt sumarsýningar safnanna og eru opnar til 19. ágúst. Safnið er opið alla daga 12-17.
 
Listasafn Reykjanesbæjar opnaði í tilefni 15 ára afmælis safnsins þrjár sýningar í Duus Safnahúsum sl. föstudag. Verkin á sýningunum þremur koma öll úr safneigninni og hafa flest komið inn á síðustu árum. Verkin eru af margvíslegu tagi, s.s. olíuverk, vatnslitamyndir, skúlptúrar og grafík og eru eftir tæplega 60 samtíma listamenn. Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.
 
Þá opnaði Byggðasafn Reykjanesbæjar sýninguna „Hlustað á hafið“ í einum sala Duus Safnahúsa en safnið verður 40 ára síðar á árinu. Sýningin fjallar um náin tengsl sjómanna árabátatímans við sjóinn og fórnir þeirra við að ná í gull hafsins, sem öllu máli skipti fyrir lífsafkomuna. Sýningarstjóri er Eiríkur Páll Jörundsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024