Bygg
Bygg

Fréttir

Líkur hafa aukist á að nýr kvikugangur myndist undir Fagradalsfjalli
Mynd Veðurstofu Íslands sem sýnir nær lóðrétta færslu á tímabilinu 7. ágúst til 6. október 2023. Myndin er unnin úr gervitunglagögnum úr Sentinel-1 (InSAR). Rauði liturinn sýnir landris.
Föstudagur 13. október 2023 kl. 16:48

Líkur hafa aukist á að nýr kvikugangur myndist undir Fagradalsfjalli

Merki um landris á Reykjanesskaga mældust fljótlega eftir að eldgosinu við Litla Hrút lauk í byrjun ágúst í sumar. Landrisið er á svipuðum slóðum og það var fyrir gosið 10. júlí sem stóð yfir í um 4 vikur. Frá þessu greinir Verðurstofa Íslands.

Nýjustu GPS mælingar gefa nú vísbendingar um hröðun á landrisinu. Líkurnar á því að nýr kvikugangur myndist undir Fagradalsfjalli hafa aukist og getur sú þróun átt sér stað á næstu vikum eða mánuðum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Fyrstu líkön sem keyrð hafa verið út frá gervihnattagögnum benda til þess að þensluna megi rekja til kviku sem er að safnast fyrir á um 10 km dýpi. Það ferli sem er í gangi núna er sambærilegt því sem sést hefur í aðdraganda fyrri kvikuinnskota í Fagradalsfjalli. Enn fremur sýna gögn að hraði á aflögun hefur aukist síðustu vikur,“ segir í færslu á vef Veðurstofu Íslands.

Líkurnar á því að nýr kvikugangur myndist undir Fagradalsfjalli hafa aukist og getur sú þróun átt sér stað á næstu vikum eða mánuðum. Þetta myndi valda skjálftavirkni þegar kvika brýtur sér leið í gegnum stökka hluta jarðskorpunnar sem gæti endað með eldgosi.

Um 520 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í síðustu viku og það sem af er þessarri viku hafa rúmlega 220 skjálftar mælst. Í síðustu viku mældust tveir skjálftar stærri en 3, annar 3,3 að stærð vestan Kleifarvatns og hinn 3,2 að stærð um 5 km NA við Grindavík. Fyrir eldgosin í Fagradalsfjalli 2022 og sumarið 2023 mældust þúsundir jarðskjálfta nokkra daga áður en gos hófst, þegar kvikugangur nálgaðist yfirborð.