Líkur á næturfrosti
Klukkan 6 var norðaustan átt á landinu, 8-13 m/s víðast hvar. Skýkjað með köflum vestantil, rigning um landið suðaustanvert, en annars skýjað og yfirleitt þurrt. Hiti 4 til 8 stig, hlýjast sunnanlands.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustan og norðan 8-15 m/s. Fer að draga úr vindi síðdegis, N 5-10 í nótt. Skýjað með köflum eða léttskýjað. Hiti 5 til 10 stig í dag, en hætt við frosti í innsveitum í nótt.
Kortið er af vef Veðurstofunnar