Líkur á eldgosi á næstunni verða að teljast verulegar
Frá Veðurstofunni: Um 800 skjálftar hafa mælst á umbrotasvæðinu frá því á miðnætti. Aðeins hefur dregið úr skjálftavirkninni síðustu klukkutímana, sem mælist þó ennþá mikil. Mesta skjálftavirknin síðustu klukkustundirnar hefur verið við suðvestur enda gangsins nærri Grindavík.
Út frá nýjustu GPS gögnum er hraði aflögunarinnar margfaldur á við það sem mælst hefur í umbrotunum á Reykjanesskaga. Líkur á eldgosi á næstunni verða að teljast verulegar.
Blaðamannafundur verður haldinn í húsnæði almannavarna kl. 12 í dag þar sem farið verður betur yfir stöðu mála og mögulegar sviðsmyndir.