Líknandi meðferð deyjandi sjúklinga til Reykjavíkur
Hjúkrunarráð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) hefur sent frá sér ályktun vegna niðurskurðar á fjárlögum til stofnunarinnar. Segir í ályktuninni að ráðið lýsi yfir verulegum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar sem muni hafa í för með sér gífurlega skerðingu á þjónustu við íbúa svæðisins.
„Sýnt er að fæðingaþjónusta, þjónusta við hjarta og lungnasjúklinga, endurhæfing, þjónusta við langveika og krabbameinssjúklinga og líknandi meðferð deyjandi sjúklinga svo eitthvað sé nefnt mun flytjast til Reykjavíkur,“ segir í ályktuninni en þar er jafnframt skorað á ráðamenn þjóðarinnar að endurskoða niðurskurðinn á HSS.
Ályktunin er eftirfarandi:
Hjúkrunarráð HSS lýsir yfir verulegum áhyggjum vegna 25% niðurskurðar á fjárlögum 2011. Að óbreyttu hefur þetta í för með sér gífurlega skerðingu á þjónustu við íbúa svæðisins. Sýnt er að fæðingaþjónusta, þjónusta við hjarta og lungnasjúklinga, endurhæfing, þjónusta við langveika og krabbameinssjúklinga og líknandi meðferð deyjandi sjúklinga svo eitthvað sé nefnt mun flytjast til Reykjavíkur.
HSS hefur á undanförnum árum þurft að búa við lægstu fjárframlög miðað við íbúafjölda samanborið við aðrar heilbrigðisstofnanir.
Búast má við að 60-100 manns missi atvinnu þar sem mesta atvinnuleysið er fyrir á landinu og er það óásættanlegt.
Við skorum á ráðamenn þjóðarinnar að endurskoða niðurskurðinn á HSS. Suðurnesjamenn munu áfram þurfa á þjónustu að halda og ljóst að ekki er um sparnað að ræða með því að flytja þá til Reykjavíkur.
Hjúkrunarráð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
?Bryndís Sævarsdóttir?
Steina Þórey Ragnarsdóttir