Líkfundur í Reykjanesbæ
Í hádeginu í dag barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um líkfund við fjöruborðið við Fitjabraut í Reykjanesbæ. Við fyrstu skoðun læknis var ekki talið að um neitt saknæmt hafi átt sér stað.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum.