LÍFEYRISSJÓÐIRNIR SAMEINAST
Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík (LVG) og Lífeyrissjóður Suðurnesja (LS), hafa tekið ákvörðun um að sameina sjóðina. Við sameiningna munu eignir og skuldbindingar Lífeyrissjóðs verkafólks í Grindavík renna til Lífeyrissjóðs Suðurnesja og mun hinn sameinaði sjóður áfram heita Lífeyrissjóður Suðurnesja, með heimilisfang að Tjarnargötu 12, í Keflavík. Sameiningin tekur gildi 1. janúar 2000 og tekur LS þá við öllum eignum LVG og yfirtekur um leið allar skuldbindingar LVG gagnvart félögum sjóðsins. Stefnt er að því að réttindi félaga í LVG muni frá þeim degi verða hin sömu og þau réttindi sem félagar LS njóta nú.Á undanförnum árum hefur umhverfi lífeyrissjóða á Íslandi breyst mikið og m.a. hafa nýjar reglugerðir, auknar arðsemiskröfur, samkeppni og hert eftirlit aukið verulega álag á starfsemi lífeyrissjóða. Stjórn Lífeyrissjóðs verkafólks í Grindavík og stjórn Lífeyrissjóðs Suðurnesja hófu viðræður á haustmánuðum í þeim tilgangi að kanna það hvort að hagsmunum sjóðfélaga gæti hugsanlega verið best borgið með formlegri samvinnu sjóðanna tveggja og var niðurstaðan ótvíræð. Það er mat stjórnar sjóðanna að stefna beri að því að auka mátt sjóðsins með öllum tiltækum ráðum í því skyni að auka hagræðingu, auka þjónustu við sjóðfélaga og ekki síst að stefna að faglegri vinnubrögðum í því skyni að auka ávöxtun og minnka áhættu. Friðjón Einarsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Suðurnesja, sagði að stjórn LS hefði í hyggju að byggja upp sterkan sjóð sem staðið gæti af sér áföll og verið virkur þátttakandi í samfélaginu og skapað sjóðfélögum sínum áhyggjulausari framtíð á Suðurnesjum.