Líf færist í aukana í Græna iðngarðinum
Græni iðngarðurinn í grænni uppbyggingu
Smám saman er að færast aukið líf hjá Græna iðngarðinum í Suðurnesjabæ.
Í samvinnu við Suðurnesjabæ er iðngarðurinn að vinna í trjárækt og umverfisverkefnum á lóð garðsins. Í síðustu viku, fimmtudaginn 13. júlí, hófst gróðursetning trjágróðurs á lóð garðsins, þar sem fulltrúar sendiráða Bandaríkjanna og Kanada, gestir frá Mikluvötnum í Kanada og bæjarstjóra Suðurnesjabæjar, ásamt forsvarsmönnum Græna iðngarðsins tóku til hendinni og gróðursettu tré.
Græni iðngarðurinn mun bjóða gestum sínum að planta trjám á lóð iðngarðsins og taka þannig þátt í grænni uppbyggingu á svæðinu. Það verður spennandi að fylgjast með uppbyggingu Græna iðngarðsins, enda mörg spennandi verkefni í farvatninu hjá iðngarðinum.
Myndir og frétt af Sudurnesjabaer.is