Bygg
Bygg

Fréttir

Liðsfélagarnir koma Magnúsi til aðstoðar
Föstudagur 2. febrúar 2007 kl. 18:16

Liðsfélagarnir koma Magnúsi til aðstoðar

Liðsfélagar Magnúsar Þórs Gunnarssonar í Keflavíkurliðinu í körfuknattleik hafa opnað styrktarreikning til handa honum og fjölskyldu hans en í gær brann íbúð hans við Kirkjuteig í Keflavík. Af þeim sökum lék Magnús ekki með Keflavíkurliðinu gegn Haukum í gær.

 

Miklar skemmdir urðu á íbúðinni og af því tilefni hafa liðsfélagar Magnúsar opnað styrktarreikning í Landsbankanum í Keflavík fyrir Magnús og fjölskyldu hans en hann á konu og barn.

 

Reikningsnúmerið er eftirfarandi:

 

Landsbankinn í Keflavík

0142-05-3358

Kt: 070281-4309

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn