Lið Reykjanesbæjar mætir liði Reykjavíkur
	Lið Reykjanesbæjar mætir liði Reykjavíkur í 8 liða úrslitum í Útsvari á RÚV í kvöld, föstudagskvöld kl. 20.
	
	Þetta er í annað sinn á þessum vetri sem liðin mætast en Reykjanesbær sló Reykjavík út í fyrstu umferð þáttarins í október með 87 stigum gegn 60.
	
	Í febrúar var Fjarðabyggð, sem hafði 6 stiga forystu fyrir lokaspurningarnar, „tekin með tannþræði“ 75 – 61. Viðureignin var sérlega skemmtileg, eða það fannst í það minnsta spyrlinum, Sigmar Guðmundssyni, sem skemmti áhorfendum með óstöðvandi hláturskasti, segir í frétt á vef Reykjanesbæjar.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				