Bygg
Bygg

Fréttir

Lið Holtaskóla sigrar Gettu ennþá betur
Föstudagur 5. febrúar 2016 kl. 09:23

Lið Holtaskóla sigrar Gettu ennþá betur

Gettu ennþá betur, spurningakeppni grunnskólanna í Reykjanesbæ fór fram í Njarvíkurskóla miðvikudaginn 3. febrúar. Í hverri umferð keppa tveir skólar sín á milli og halda áfram ef þeir sigra.

Nemendur Holtaskóla höfðu titil að verja en fyrir hönd skólans kepptu Jón Stefán, fyrirliði, Zuzanna og Elsa öll í 10. bekk. Varamaður var Ólafur Þór úr 9.bekk. Lið Holtaskóla sat hjá í fyrstu umferð og fór beint í undanúrslit. Þar lögðu þau ungt lið Akurskóla að velli. Í hinni viðureigninni áttust við Heiðarskóli og Njarðvíkurskóli og sigraði sá síðarnefndi eftir æsispennandi keppni. Úrslitin voru því á milli Holtaskóla og Njarðvíkurskóla.

Óhætt er að segja að spennan hafi verið rafmögnuð þegar spurningarnar dundu á nemendum því að nánast var jafnt allan tímann. Fyrir síðustu spurninguna sem gaf þrjú stig var Holtaskóli með tveggja stiga forskot. Eftir að hafa hlustað á hluta af lagi með Ingólfi verðurguði þá var spurt fyrir hvað skammstöfunin LÍN stæði. Það mátti sjá „reyk“ stíga upp úr höfði keppanda svo mikil var einbeitningin. Eftir drykklanga stund kom rétta svarið: „Lánasjóður íslenskra námsmanna“, og voru það Holtskælingar sem svöruðu rétt. Titillinn var því þeirra annað árið í röð.  Gleði sigurliðsins var ósvikin eftir þessa æsispennandi keppni, segir í tilkynningu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn