Lið Garðs keppir í Útsvari í kvöld
Lið Garðs keppir í spurningakeppninni Útsvari á RÚV í kvöld, föstudag, en liðið mætir Ísafirði. Lið Garðs tapaði gegn Grindavík í haust en var stigahæsta taplið fyrstu umferðar og komst því sjálfkrafa inn aðra umferð, en fjögur efstu tapliðin komast áfram í aðra umferð.
Liðið skipa þau Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson, Elín Björk Jónasdóttir og Jón Bergmann Heimisson en þau voru öll saman í bekk í Gerðaskóla í Garði.
Útsendingin hefst kl. 20:05 og er íbúum í Garði og öllum þeim sem vilja mæta í sjónvarpssal til að styðja liðið velkomið að mæta og fylgjast með keppninni. Áhorfendur þurfa að vera mættir kl. 19:30 að Efstaleiti 1.