Bygg
Bygg

Fréttir

Leystu upp samkomu í bílskúr og dósum stolið
Föstudagur 14. ágúst 2020 kl. 09:49

Leystu upp samkomu í bílskúr og dósum stolið

Lögreglan á Suðurnesjum leysti upp samkomu í bílskúr í umdæminu þar sem ummerki voru um fíkniefnaneyslu og þrír gesta undir lögaldri. Einn gestanna framvísaði kannabisefni. Haft var samband við forráðamenn þeirra sem voru undir lögaldri og tilkynning send til barnaverndarnefndar.

Enn fremur var tilkynnt um þjófnað á nokkrum pokum af dósum sem geymdir voru í porti við söluturn í Grindavík. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Skráningarnúmer voru svo fjarlægð af sex bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.