Léttskýjað við Faxaflóa
Norðaustan 8-13 og léttskýjað við Faxaflóa. Frost 0 til 5 stig. Heldur hvassara á morgun og stöku él síðdegis.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan og síðar norðaustan 5-13 m/s og léttskýjað. Hiti nálægt frostmarki, en vægt frost síðdegis. Norðaustan 10-15 á morgun og stöku él síðdegis.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag og sunnudag:
Norðaustan 10-20 m/s, hvassast SA-til. Bjart með köflum á SV- og V-landi, annars skýjað og víða él. Frost 0 til 7 stig, kaldast fyrir norðan.
Á mánudag:
Norðaustanátt og snjókoma eða él, en þurrt á S- og SV-landi. Rigning við A-ströndina síðdegis. Hiti kringum frostmark.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Austlæg átt, rigning eða slydda með köflum SA- og A-lands, annars úrkomulítið. Hiti 0 til 5 stig, en um eða undir frostmarki fyrir norðan.