Léttskýjað og kalt í dag

Við Hjaltlandseyjar er víðáttumikil 983 mb lægð sem þokast SA og grynnist smám saman. Yfir Grænlandi er 1028 mb hæð og önnur 1033 mb hæð er langt SV í hafi og hreyfist austur.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðanátt, víða 15-20 m/s austast á landinu í fyrstu, annars yfirleitt 5-13. Skúrir eða él norðaustanlands, en léttskýjað sunnan- og vestantil. Lægir smám saman í dag. Norðan og norðvestan 3-8 síðdegis, en heldur hvassari norðaustan- og austanlands og stöku skúrir eða slydduél fram til kvölds. Hiti 1 til 7 stig að deginum, en víða næturfrost. Hæg vestlæg eða breytileg átt á morgun og léttskýjað, en fer að þykkna upp vestanlands síðdegis. Hlýnandi veður.