Léttskýjað og hlýnandi í dag
Klukkan 6 var norðanátt á landinu, víða 8-15 m/s norðan- og austanlands og stöku él, en hægari annars staðar og skýjað með köflum. Hlýjast var 3 stiga hiti á Ingólfshöfða, en kaldast 5 stiga frost í Þykkvabæ.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðvestan 5-10 m/s og léttskýjað. Suðvestan gola í kvöld, þykknar upp og dálítil slydda í nótt, en suðvestan 8-13 og rigning á morgun. Hægt hlýnandi í dag og hiti 2 til 7 stig á morgun.