Léttskýjað og hiti 1-5 stig
Faxaflói:
Veðurstofa gerir ráð fyrir norðan og norðaustan 5-10 m/s. Léttskýjað í dag og hiti 1-5 stig en hæg sunnan átt og vægt frost í nótt. Á morgun verður suðaustan 5-13 og rigning síðdegis.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á mánudag:
Austan- og suðaustan 15-20 m/s og talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en annars hægara og þurrt að kalla. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast vestan til.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Austan- og norðaustan 13-18 m/s og vætusamt, einkum á austanverðu landinu. Milt veður.
Á fimmtudag:
Fremur hæg norðlæg átt og dálítil væta með köflum, en gengur í suðaustanátt með rigningu suðvestanlands. Áfram milt veður.
Á föstudag:
Útlit fyrir norðaustanátt og kólnandi veður.