Léttskýjað og allt að 17 stiga hiti
Norðaustan 3-8 m/s og léttskýjað við Faxaflóa, en hæg austlæg eða breytileg átt og líkur á stöku skúrum síðdegis á morgun. Hiti 11 til 17 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðaustan 3-8 og léttskýjað í dag, en hæg breytileg átt í nótt og á morgun og líkur á stöku síðdegisskúrum. Hiti 12 til 16 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en líkur á stöku síðdegisskúrum S-lands. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast inn til landsins V-til.
Á föstudag:
Norðlæg átt, 3-8 m/s en 5-10 á annesjum NA-til. Skýjað með köflum en bjartviðri S-til. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast S-lands.
Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum eða bjartviðri og áfram hlýtt í veðri.