Léttskýjað í dag en nálægt frostmarki í nótt
Klukkan 6 var norðlæg átt á landinu, víða 8-13 m/s austantil en annars hægari. Dálítil él eða skúrir um landið norðanvert, en léttskýjað sunnantil. Hiti var frá 6 stigum niður í 2 stiga frost, hlýjast í Skaftafelli, en svalast á Kálfhóli á Skeiðum.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðan og norðvestan 3-8 m/s og léttskýjað. Hiti 5 til 10 stig yfir daginn en nálægt frostmarki í nótt.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýni veðrið um hádegi í dag.