Léttskýjað í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan og norðaustanátt víða 8-13 m/s, en hægari inn til landsins. Lægir smám saman í dag, frem hæg breytileg átt í kvöld. Skúrir eða slydduél norðaustantil fram yfir hádegi, en léttir síðan til. Léttskýjað sunnan- og vestanlands. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestantil á morgun, 10-15 og skýjað síðdegis, en mun hægari og bjart norðan- og austanlands. Hiti 0 til 7 stig og hlýjast sunnanlands, en víða frost í nótt, einkum inn til landsins.