Léttskýjað í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðanátt, víða 10-15 m/s, en lægir smám saman sunnan- og austanlands. Súld eða rigning norðaustanlands til kvölds, en styttir síðan upp. Víða léttskýjað sunnan og vestan til í dag. Gengur í norðaustan 10-15 með rigningu á vestanverðu landinu á morgun, en mun hægari og súld suðaustan til. Vestan 3-8 og skýjað með köflum norðaustanlands. Hiti 11 til 16 stig sunnanlands, en 7 til 12 stig fyrir norðan.