Léttskýjað í dag
Norðaustan 5-10 og léttskýjað verður við Faxaflóa í dag. Norðaustan 10-15 síðdegis. Hiti 10 til 13 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðlæg átt, víða 8-15 m/s, en 15-20 við austurströndina. Rigning NA- og A-lands, annars léttskýjað. Hiti 5 til 10 stig, en 10 til 15 stig syðst.
Á fimmtudag og föstudag:
Norðlæg átt, 5-10 m/s. Vætusamt norðaustantil, úrkomulítið norðvestantil en annars staðar bjart veður með stöku skúrum. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað víða um land, þó síst á norðausturhorninu. Hiti 8 til 15 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og hlýnandi veður. Þykknar upp vestanlands.
Á mánudag:
Sunnan átt og rigning sunnan- og vestanlands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast austanlands.
Mynd: Það viðrar vel á þátttakendur í Norðurvíkingi 2007, sem munu stunda sínar æfingar af kappi í dag. Ljósmynd: Páll Ketilsson