Léttskýjað í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri eða breytilegri átt, yfirleitt 3-8 m/s. Dálítil súld öðru hverju austan- og suðaustanlands, víða bjart veður suðvestan- og vestanlands þegar líður á daginn, en annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. Léttir einnig til norðanlands á morgun. Hiti 5 til 15 stig að deginum, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.