Léttskýjað í dag, þykknar upp í nótt

Veðurhorfur á landinu til klukkan 18 á morgun:
Suðvestan 8-13 m/s, en heldur hægari síðdegis. Yfirleitt léttskýjað, en stöku skúrir norðvestan til. Suðlægari og þykknar upp suðvestanlands í nótt. Suðaustan 8-13 og rigning sunnan- og vestanlands á morgun, en annars hægari og skýjað með köflum. Hiti 15 til 20 stig austanlands að deginum, en annars 10 til 15.