Léttskýjað í dag – rigning í nótt

Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðan 10-20 m/s, hvassast A-lands. Snjókoma og síðar él á N- og A-landi, en léttir til S- og V-lands. Lægir síðdegis. Frost um allt land.
Á sunnudag og mánudag:
Suðaustlæg átt og hlýnandi veður. Slydda og síðar rigning með köflum, einkum S- og V-lands.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt og él S- og V-lands og hiti í kringum frostmark, annars úrkomulítið og frost.
Á miðvikudag:
Suðaustlæg átt með vætu og hlýnandi.