HSS
HSS

Fréttir

Léttskýjað - lægir í kvöld
Laugardagur 23. júní 2007 kl. 13:34

Léttskýjað - lægir í kvöld

Veðurhorfur næsta sólarhringinn. Norðan og norðaustan 8-13 m/s, en hægari V-lands. Víða léttskýjað og 12 til 20 stiga hiti, þó mun svalara norðaustantil á landinu, skýjað og dálítil súld. Lægir í kvöld og nótt. Hæg breytileg átt eða hafgola á morgun, bjartviðri og fremur hlýtt. Skýjað V-lands síðdegis og súld á annesjum.

Faxaflói - Veðurhorfur til kl. 18 á morgun
Norðaustan 5-13 m/s og léttskýjað. Lægir í kvöld, hæg vestlæg átt á morgun og þykknar upp síðdegis. Hiti 10 til 18 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag: Breytileg átt og síðar norðaustan 5-10 m/s og léttir víða til, en skýjað norðaustantil á landinu og dálítil súld við ströndina. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast S-lands. Á þriðjudag: Norðanátt og léttskýjað S- og V-lands, en skýjað á N- og A-landi. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag: Norðanátt og rigning með köflum N- og A-lands, en bjartviðri suðvestantil á landinu. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast syðst.

Byggt á spá Veðurstofu Íslands - www.vedur.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn