Léttir til við Faxaflóa
Á Garðskagavita voru N 9 klukkan átta í morgun og 11 stiga hiti.
Klukkan 6 í morgun var norðvestlæg átt á landinu, 5-10 m/s. Rigning eða súld norðan- og austantil. Sums staðar léttskýjað sunnanlands, en annars skýjað og þurrt að kalla. Hiti 7 til 11 stig.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Fremur hæg norðvestan átt og léttir til. Norðan 10-13 síðdegis. Minnkandi norðan átt á morgun og léttskýjað. Hiti 10 til 15 stig.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Vaxandi norðan átt og léttir til sunnan- og vestanlands, en súld eða rigning norðan- og austantil. Norðlæg átt 8-15 m/s síðdegis. Dregur úr vindi á morgun. Skýjað og úrkomulítið austantil, en annars bjartviðri. Hiti 7 til 13 stig, en 11 til 17 stig sunnanlands. Hlýnar heldur á vesturlandi á morgun.