Léttir til vestanlands í kvöld og nótt
Í dag verður austlæg átt, víða 3-8 m/s og skýjað með köflum, en 8-13 og dálítil rigning eða súld við suður- og vesturströndina fram eftir degi. Léttir til vestanlands í kvöld og nótt, en stöku skúrir eða él austan til. Austan 5-10 m/s og skýjað með köflum á morgun, en smá skúrir eða él á austanverðu landinu.Hiti víða 1 til 6 stig, en frost 0 til 8 stig í innsveitum norðan og austan til.