Léttir til síðdegis
Norðvestan 3-8 m/s, skýjað með köflum og skúrir, en léttir til eftir hádegi. Norðlægari á morgun og víða léttskýjað. Hiti 10 til 16 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast inn til landins.
Á sunnudag:
Hæg suðvestlæg átt og þykknar upp vestantil á landinu með dálítilli vætu síðdegis, en annars bjartviðri. Hlýtt í veðri, einkum NA-lands.