Léttir til síðdegis
Klukkan 6 var suðvestanátt, víða 10-15 m/s og skúrir eða él, en yfirleitt bjart austan til. Hiti var 0 til 8 stig, hlýjast á Austfjörðum.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðvestan 10-15 m/s og slydduél, en vestlægari og léttir til síðdegis. Norðvestan 8-13 og léttskýjað í kvöld, en norðlægari á morgun. Hiti 1 til 5 stig, en vægt frost í nótt og á morgun.








