Léttir til með norðanátt
Klukkan 8 í morgun voru NNA 14 á Garðskagavita og 10 stiga hiti.
Klukkan 6 í morgun var norðaustlæg átt, 10-13 m/s við norðvestur- og vesturströndina en víða 3-8 annars staðar. Skýjað var um allt land nema sums staðar suðvestanlands og rigning eða súld norðan- og austantil. Hiti frá 6 stigum á Vestfjörðum uppí 10 stig á Fagurhólsmýri.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustan 8-13 m/s, en norðlægari er líður á daginn. Léttir til. Hiti 8 til 14 stig.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast norðvestantil. Norðlægari vindur í dag, víða 10-13 m/s, og enn hvassara við norðurströndina og um landið vestanvert. Súld eða rigning N- og A-lands, en léttir víða til sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 10 stig fyrir norðan, en 10 til 15 sunnantil.