Bygg
Bygg

Fréttir

Léttir til í nótt
Miðvikudagur 17. mars 2010 kl. 08:11

Léttir til í nótt


Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn gerir ráð fyrir austlægri átt 5-10 m/s, rigningu eða súld, en norðaustan 8-13 um tíma í dag. Austlæg átt 5-8 og úrkomulítið í nótt og á morgun. Hiti 3 til 8 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Austlæg átt 5-10 m/s. Rigning eða súld með köflum. Hægari vindur síðdegis og úrkomulítið. Austan 5-8 og lítilsháttar rigning á morgun. Hiti 3 til 8 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Austan og norðaustan 8-13 m/s. Snjókoma norðan- og austantil, en dálítil rigning af og til annars staðar. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast við suðurströndina.

Á föstudag:
Austan og norðaustan 5-13 m/s. Dálítil él norðan- og austantil á landinu, en þurrt að kalla sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 5 stig um landið norðanvert, en frostlaust sunnantil.

Á laugardag:
Austlæg átt 5-10 m/s, skýjað með köflum og stöku él. Frost 0 til 10 stig, en hiti um frostmark við suðurströndina.

Á sunnudag:
Hvöss austan átt og slydda sunnantil, en annars hægari og dálítil él. Hlýnar lítið eitt.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir austan átt með slyddu og síðar rigningu með köflum og heldur hlýnandi veður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn